Anton Guðjónsson
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði og kom mjög á óvart. Ég tel það nokkuð einsýnt að þetta mál komi til kasta Hæstaréttar þar sem þetta verður endurskoðað með einhverjum hætti,“ segir Steinbergur Finnbogason, verjandi Claudiu Sofiu Carvahlo í Rauðagerðismálinu, en sýknudómi hennar var snúið í 14 ára fangelsi.
Angjelin Sterkaj var í dag dæmdur í Landsrétti í 20 ára fangelsi fyrir að hafa orðið Armando Beqirai að bana við heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík í fyrra.
Þau Sheptim Qerimi, Claudia Sofia Coelho Carvalho og Murat Selivrada sem voru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins í héraðdómi voru öll dæmd í 14 ára fangelsi í Landsrétti.
Steinbergur var nýkominn með dóminn í hendurnar þegar mbl.is náði tali af honum og sagði ekki beint út að hann myndi ætla sér að áfrýja málinu til hæstaréttar en sagði þó:
„Miðað við þennan mikla viðsnúning tel ég það nokkuð einsýnt að þetta mál muni koma til kasta Hæstaréttar“