Kristrún með 280 atkvæði á bak við sig

Kristrún er nýr formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún er nýr formaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alls voru 382 á kjörskrá þegar kjör til formanns Samfylkingarinnar fór fram á landsfundi flokksins á föstudaginn. Af þeim 382 sem voru á skránni greiddu 77,49% atkvæði í kosningunni.

Líkt og greint hefur verið frá var Kristrún Frostadóttir ein í framboði og hlaut hún 94,59% greiddra atkvæða, alls 280 atkvæði.

Alls voru 406 á kjörskrá þegar kosið var um formann framkvæmdastjórnar, ritara og gjaldkera. Kosið var í þau embætti á laugardaginn.

Guðmund­ur Árni Stef­áns­son var einn í framboði til varaformanns og var ekki haldin kosning um það embætti, ólíkt formannskosningunni. Samkvæmt lögum Samfylkingarinnar þarf alltaf að fara fram kosning um formann jafnvel þótt einn einstaklingur sé í kjöri. Þetta á þó ekki við um önnur embætti.

Uppfært

Upphaflega í fréttinni var talað um að Kristrún hefði 254 atkvæði á bak við sig, en hið rétt er að þau voru 280. Leiðréttist það hér með.

Hér að neðan má sjá frekari tölur frá kosningu í embætti formanns, ritara, gjaldkera og formanns framkvæmdastjórnar:

Formannskjör:

  • Á kjörskrá: 382
  • Kjörsókn: 77,49%

Af þeim sem greiddu atkvæði:

  • Kristrún Frostadóttir - 94,59%

Formaður framkvæmdastjórnar:

  • Á kjörskrá: 406
  • Kjörsókn: 78,57%

Af þeim sem greiddu atkvæði:

  • Guðmundur Ari Sigurjónsson - 72,73%
  • Kjartan Valgarðsson - 27,27%
  • Skiluðu auðu - 0%

Gjaldkeri:

  • Kjörskrá: 406
  • Kjörsókn: 68,97 %

Af þeim sem greiddu atkvæði:

  • Jón Grétar Þórsson - 49,64%
  • Stein Olav Romslo - 48,93%
  • Skiluðu auðu - 1,43%

Ritari:

  • Á kjörskrá: 406
  • Kjörsókn: 64,44%

Af þeim sem greiddu atkvæði:

  • Anna Lára Jónsdóttir - 59,77%
  • Alexandra Ýr van Erven - 39,85%
  • Skiluðu auðu - 0,38%
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert