Miklar tíðablæðingar möguleg aukaverkun

Bólusett var með Comirnaty og Spikevax hér á landi.
Bólusett var með Comirnaty og Spikevax hér á landi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sérfræðinganefnd lyfjastofnunar Evrópu um lyfjaöryggi (PRAC) hefur lagt til að miklar tíðablæðingar verði skráðar sem möguleg aukaverkun af óþekktri tíðni við notkun Covid-19 bóluefnanna Comirnaty og Spikevax.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Lyfjastofnunar. 

Það teljast miklar tíðablæðingar þegar þær standa lengur eða magn tíðablóðs er meira en vanalega og þær hafa áhrif á lífsgæði einstaklingsins. 

Tilkynnt hefur verið um slík tilfelli eftir grunn-, og örvunarbólusetningar með bæði Comirnaty, sem er framleitt af Pfizer og Bi­oNTech, og Spikevax, sem er framleitt af Moderna. Bólusett var með báðum efnunum hér á landi. 

Ekki áhrif á frjósemi

„Til að meta þetta öryggisboð fór PRAC yfir gögn úr klínískum rannsóknum, aukaverkanatilkynningar úr Eudravigilance-gagnagrunninum og upplýsingar úr klínískum textum. Niðurstaðan var að það væri að minnsta kosti raunhæfur möguleiki að tengsl væru á milli bólusetninga með þessum bóluefnum og miklum tíðablæðingum,“ segir í tilkynningunni. 

Þá segir að aukaverkanirnar hafi í flestum tilfellum verið tímabundnar og ekki alvarlegar. Þá benti ekkert til þess að aukaverkanirnar sem tilkynntar voru hefðu áhrif á frjósemi. Einnig sýndu tiltæk gögn um mRNA Covid-19 bóluefni fram á að þau væru örugg á og eftir meðgöngu.

Nefndin tekur fram að öll gögn bendi til þess að ávinningurinn sé töluvert meiri en áhættan af notkun bóluefnanna. Heilbrigðisstarfsfólk og almenningur eru þó beðin um að halda áfram að tilkynna grun um aukaverkun ef miklar tíðablæðingar verða eftir bólusetningu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka