Aðalmeðferð í máli þriggja málsóknarfélaga hluthafa í Landsbanka Íslands gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni fer fram 17. apríl á næsta ári í Héraðsdómi Reykjavíkur. Áætlað er að málið standi yfir í um þrjár vikur með hléum, eða til 9. maí.
Þetta var niðurstaða dómara í dómþingi 25. október en þar kom m.a. fram að lögmenn aðila hefðu lýst öflun sýnilegra sönnunargagna lokið og töldu því málið tilbúið til aðalmeðferðar.
Í gögnum sem mbl.is hefur undir höndum kemur fram hvaða vitni félögin hyggist kalla fyrir dóm sem og þau vitni sem Björgólfur Thor hyggst leiða fyrir dómara.
Stefna í máli Málsóknarfélags hluthafa í Landsbanka Íslands á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni var fyrst þingfest 29. október árið 2015. Félaginu var síðan skipt upp í þrjú félög árið 2017 eftir að fyrri málsókn var vísað frá. Hluthöfunum var þá skipt upp í hópa eftir því hversu lengi þeir höfðu átt bréf í Landsbankanum.
Stefnendur telja að Björgólfur hafi með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar Landsbankans fengju upplýsingar um umfangsmiklar lánveitingar og einnig að hann hafi brotið gegn reglum um yfirtöku.
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2015/09/25/stefnan_i_postkassanum_hja_bjorgolfi/