Ánægja í Úkraínu með ullarsokka frá Íslandi

Guðni Th. Jóhannesson heilsaði upp á öflugt prjónafólk.
Guðni Th. Jóhannesson heilsaði upp á öflugt prjónafólk. mbl.is/Kristinn Magnússon

Úkraínska ríkissjónvarpið hrósaði í gær Íslendingum fyrir framtakið „Sendum hlýju frá Íslandi“ en þúsundir íslenskra ullarsokka hafa þegar ratað á fætur Úkraínumanna.

Ríkisfréttastofan birti viðtal við Guðna Th. Jóhannesson forseta, Sölku Sól Eyfeld tónlistarkonu og eldri borgara sem prjónuðu sokka fyrir Úkraínumenn.

Hér fyrir neðan má sjá innslag ríkissjónvarpsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert