Stjórn Blaðamannafélags Íslands (BÍ) hefur sent ríkislögreglustjóra og forstjóra Isavia bréf vegna aðgerða Isavia til að hindra blaðamenn við störf aðfaranótt fimmtudags.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Blaðamannafélagsins.
Starfsmenn Isavia reyndu ítrekað að koma í veg fyrir myndatökur tökuliðs Ríkisútvarpsins á vettvangi á Keflavíkurflugvelli þegar fréttamenn reyndu að fylgjast með aðgerðum lögreglu þegar hópur hælisleitenda var sendur til Grikklands.
„Blaðamannafélagið lítur þetta alvarlegum augum enda felur þessi háttsemi starfsmanna Isavia í sér atlögu að störfum blaðamanna. Óumdeilt er að þarna var um fréttnæman atburð að ræða sem fullt tilefni er til að fjalla um. Hvorki lögregla né opinbert hlutafélag, sem Isavia er, á að fá að hlutast til um eðlileg störf blaðamanna eða hindra að fluttar séu fréttir af atburðum sem eiga sér stað innan starfssvæðis flugvallarins,“ segir í tilkynningu félagsins.
Isavia hefur kvaðst harma framkomu starfsmanna sinna við fjölmiðla.
Þá segir að fréttamenn sem þarna voru að störfum hafi virt allar lokanir og takmarkanir sem gilda um öryggissvæði flugvallarins.
BÍ óskar eftir svörum frá stjórnendum Isavia og ríkislögreglustjóra við eftirfarandi spurningum:
1. Hver tók ákvörðun um að hafa áhrif á og hamla eðlilegum störfum blaðamanna?
a. Ef beiðni barst Isavia um að hamla störfum blaðamanna, hvaðan kom sú beiðni?
2. Á hvaða grunni var slík ákvörðun tekin?
3. Hvernig munu stjórnendur Isavia og Ríkislögreglustjóra bregðast við og hvernig munu verkferlar hins opinbera hlutafélags og lögreglunnar breytast til að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig?