Ísland er eitt af einungis sex þjóðum EES þar sem hlutfall skatta af vergum þjóðartekjum lækkaði á milli árana 2020 og 2021. Hlutfallið lækkaði um 1 prósentustig, úr 36,1% og í 35,1% hér á landi.
Innan Evrópska efnahagssvæðisins hækkaði hlutfallið að meðaltali um hálft prósentustig. Þetta kemur fram í samantekt Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins.
Í samtantekninni kemur einnig fram að hlutfallið sé hæst í Danmörku, 48,8%. Þar á eftir koma Frakkland, Belgía, Austurríki, Ítalía og Svíþjóð.
Skörpust var hlutfallslækkunin í Ungverjalandi þar sem hlutfallið lækkaði um rúm tvö prósentustig. Mesta hækkunin var í Noregi þar sem hlutfallið fór upp um tæpa þrjá hundraðshluta.