Kosning til formanns, varaformanns og ritara Sjálfstæðisflokksins stendur yfir um þessar mundir. Fólk er búið að sækja kjörseðlana og stendur nú frammi fyrir formannsvali.
Atkvæðum verður svo safnað úr sal og niðurstöður kynntar um leið og talningu lýkur. Streymt verður beint frá tilkynningu niðurstöðunnar á mbl.is.
Fyrst kjósa flokksmenn um formann, svo varaformann og loks ritara flokksins.
Í formannsframboði eru, líkt og frægt er orðið, þeir Bjarni Benediktsson, núverandi formaður, og Guðlaugur Þór Þórðarson.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er sem stendur ein í framboði til varaformennsku.
Ritaraembættinu vilja þrír sinna. Það eru þau Vilhjálmur Árnason, þingmaður, Helgi Áss Grétarsson, varaborgarfulltrúi, og Bryndís Haraldsdóttir, ritari þingflokksins.