Sviðsettu manndrápið á Ólafsfirði með sakborningi

mbl.is/​Hari

Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að rannsókn lögreglunnar á mannsláti á Ólafsfirði þann 3. október miða vel og er skýrslutökum að mestu lokið. Úrvinnsla gagna stendur enn yfir og er meðal annars beðið endanlegrar niðurstöðu réttarkrufningar sem og niðurstaðna samanburðarrannsókna á lífsýnum.

Fram kemur í tilkynningu lögreglu, að í dag hafi atburðurinn verið settur á svið með liðsinni sakbornings og aðstoð tæknideildar lögreglu.

„Sviðsetning er rannsóknarúrræði sem er almennt ætlað að varpa betur ljósi á þau atvik sem til rannsóknar eru og er viðbót sem getur gefið sakborningi betra færi á að lýsa atburðum. Sviðsetning er svo borin saman við önnur rannsóknargögn, svo sem vettvangsrannsókn, lífsýni og framburð annarra,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir lögreglan, að eins og fram hafi komið í fréttum, þá krefðist lögreglan ekki áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir sakborningi vegna rannsóknarinnar.

„Ákvörðunin byggist á þeim forsendum héraðsdóms og síðar Landsréttar að lögregla hefði ekki sýnt nægilega fram á að skilyrði 2. mgr. 95. gr. laga nr. 88/2008 væru fyrir hendi. Karlmaðurinn mun áfram, ásamt þremur öðrum, bera réttarstöðu sakbornings í málinu á meðan rannsókn stendur yfir. Að rannsókn lokinni verður málið svo sent til ákærumeðferðar hjá héraðssaksóknara,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert