Héraðssaksóknari mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa skipulagt hryðjuverk hér á landi. Þetta staðfestir Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari í samtali við mbl.is.
Mennirnir hafa nú verið í haldi frá því í september, eða í sjö vikur, en lögregla má ekki halda fólki í gæsluvarðhaldi lengur en í tólf vikur án þess að gefa út ákæru. Báðir karlmennirnir eru á þrítugsaldri.
Hvernig gengur rannsóknin?
„Henni miðar í raun og veru alveg ágætlega. Það er ágætis framvinda í þessu – töluverður hópur manna að vinna í málinu. Þannig að málið vinnst ágætlega en það er samt svolítið eftir,“ segir Ólafur.