Flýttu birtingu skýrslu Ríkisendurskoðunar

Skýrslan um sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í vor …
Skýrslan um sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í vor hefur verið birt. mbl.is/Kristinn Magnússon

Skýrsla Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022 hefur verið birt á vef embættisins.

Áður stóð til að skýrslan yrði gerð opinber eftir fund Ríkisendurskoðunar með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis síðar í dag. Ákvörðun um að flýta birtingu hennar var tekin eftir að ítarleg umfjöllun fjölmiðla um efni hennar hófst í gær.

Fulltrúar Ríkisendurskoðunar munu eftir sem áður kynna niðurstöður úttektarinnar á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar kl. 16.00 í dag.

Fluttar verða fréttir úr efni skýrslunnar á mbl.is í dag. Skýrsluna má í heild sinni lesa hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert