Lögreglan lýsir eftir Friðfinni

Friðfinnur Freyr Kristinsson.
Friðfinnur Freyr Kristinsson. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Friðfinni Frey Kristinssyni, 42 ára. Síðast er vitað um ferðir Friðfinns síðdegis á fimmtudaginn í síðustu viku í nýja Vogahverfinu.

Friðfinnur var klæddur í gráa peysu með BOSS merki á og gráar joggingbuxur. Hann er 182 cm á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Friðfinns eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert