Óskar eftir fundi utanríkismálanefndar „strax“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. mbl.is/Hákon

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, hefur óskað eftir fundi „strax“ í utanríkismálanefnd, „vegna árásar Rússa á Pólland“ fyrr í dag.

Frá þessu greinir hún í tísti og tekur fram að hún óski eftir viðveru forsætisráðherra og utanríkisráðherra.

Samráð við bandamenn okkar er hér lykilatriði. Það hlýtur líka að koma til álita að meta stöðu rússneska sendiherrans á Íslandi,“ skrifar hún.

Eldflaugar hæfðu Pólland

Áður hefur verið greint frá því að rúss­nesk­ar eld­flaug­ar urðu tveim­ur að bana í Póllandi, skammt frá landa­mær­um Úkraínu, síðdegis í dag.

Pól­land hef­ur ekki átt bein­an þátt í stríðinu til þessa, en landið er eitt ríkja Atlants­hafs­banda­lagsins.

Boðað hefur verið til funda varnarmála- og öryggisnefnda ríkisins í bæði Póllandi og Ungverjalandi í kjölfarið.

Uppfært:

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka