Óska eftir aðstoð íbúa í leitinni

Friðfinnur Freyr Kristinsson.
Friðfinnur Freyr Kristinsson. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan biður þau sem eru með öryggis- og eftirlitsmyndavélar í Kugguvogi í Vogabyggð, og nágrenni, að hafa samband svo hún geti kannað hvort þar kunni að sjást til ferða Friðfinns Freys Kristinssonar eftir klukkan 19 þann 10. nóvember.

Leitin að Friðfinni, 42 ára gömlum manni, sem síðast sást til fimmtudagskvöldið 10. nóvember, hefur enn engan árangur borið. Síðast er vitað um ferðir Friðfinns þann dag, þegar hann fór frá Kugguvogi.

Íbúar hverfisins beðnir að skoða geymslur, stigaganga og garðskúra

Þá eru íbúar í hverfinu beðnir um að skoða nærumhverfi sitt s.s. geymslur, stigaganga og garðskúra. Þau sem eru í forsvari fyrir auðu húsnæði í hverfinu eru beðin um að skoða slíka staði. Þau sem geta gefið upplýsingar um ferðir Friðfinns eru beðin að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Friðfinnur er 182 sm að hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg. Hann var klæddur í gráa peysu, gráar joggingbuxur og bláa íþróttaskó. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert