Vinnueftirlitið mun rannsaka hvers vegna byggingarkrani féll á Akraneshöll í gær og í framhaldinu skila sínu áliti.
Að sögn lögreglunnar á Vesturlandi tók Vinnueftirlitið við boltanum eftir að ljóst var að enginn slasaðist í óhappinu og að gat hefði komið á þakið.
Lögreglan fór þó á vettvang í gær eftir að hafa fengið útkall um að kraninn hefði fallið á höllina.