„Samskiptin hafa aukist verulega“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ásamt Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra …
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra ásamt Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi.

„Samskipti Íslands og Póllands hafa aukist verulega á undanförnum árum, ekki síst vegna þess fjölda Íslendinga sem rekja uppruna sinn til Póllands og Pólverja sem búsettir eru á Íslandi,“ segir utanríkisráðherrann Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir en sendiráð Íslands í Varsjá tekur til starfa í Póllandi hinn 1. desember næstkomandi. 

„Ég tel því ljóst að ýmis tækifæri eru uppi til að efla enn frekar samstarf þjóðanna, til dæmis á sviðum stjórnmála, efnahags og menningar. Ég er viss um að sendiráðið okkar í Varsjá á eftir að hafa mikið að segja í þeim efnum,“ er einnig haft eftir Þórdísi í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 

Fyrirsvar vegna Úkraínu, Rúmeníu og Búlgaríu verður fært til hinnar nýju sendiskrifstofu þegar hún verður opnuð í Varsjá. Hannes Heimisson verður fyrsti sendiherra Íslands í Póllandi en hann gegndi áður stöðu sendiherra Íslands í Stokkhólmi.

Forystufólk í pólsku stjórnmála-, viðskipta- og menningarlífi auk fulltrúa íslenskra fyrirtækja í Póllandi og pólsk-íslenskra vináttufélaga verður viðstatt þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra opnar sendiráðið formlega. 

Pólland hefur starfrækt sendiráð á Íslandi frá árinu 2012 og sendiskrifstofu frá árinu 2008. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert