Skjálftavirkni í Öræfajökli hefur ekki verið meiri frá því í október 2018 en haustið 2017 og fram til byrjunar árs 2019 urðu hrinur í fjallinu með nokkru millibili. Síðan þá hefur verið frekar rólegt á þessum slóðum.
Skjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands segir í samtali við mbl.is að skjálftarnir í Öræfajökli komi nokkuð óvænt þar sem það hefur verið frekar rólegt á þessum slóðum í frekar langan tíma.
„Við höfum ekkert frekari upplýsingar en skjálftana en það er ekkert í óróagögnunum sem gefur til kynna að eitthvað mikið sé að gerast heldur að þetta séu stakir skjálftar, frekar stórir og á þó nokkru dýpi. Það er engin smáskjálftavirkni komin í þetta.“
Veðurstofan hefur ekki ennþá ráðist í að taka gervitunglamyndir en rætt verður frekar um næstu skref í dag eða á morgun. Að sögn skjálftafræðings á Veðurstofu Íslands mun allt kerfið fara í gang ef virknin eykst, skjálftar verða tíðari og smærri.