Umferð um Ægisgötu í Reykjanesbæ hefur verið lokað þar sem grjót hefur borist upp á veginn vegna ágangs sjávar.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar á Suðurnesjum.
„Vegna mikils ágangs sjávar (hárri sjávarstöðu og áhlaðanda) höfum við af öryggisástæðum ákveðið að loka fyrir umferð um Ægisgötu strax. Grjót er farið að berast upp á Ægisgötu og háflóði ekki náð enn,“ segir í færslunni.