Landsréttur mildaði í dag dóm yfir Dumitru Calin, rúmenskum karlmanni á þrítugsaldri, sem hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs dóm í héraði fyrir manndráp af gáleysi og fleiri brot. Var það vegna andláts Daníels Eiríkssonar sem lést eftir að hann hafði dregist með bíl Calins í í um 14 metra, en Calin ók bílnum á 15-20 metra hraða á bílastæði við Vindakór í Kópavogi.
Héraðsdómur hafði hins vegar sýknað Calin af hættubroti um að hafa ekki komið Daníel til bjargar eða yfirgefið hann í lífshættulegu ástandi. Taldi héraðsdómur að fyrra brotið hefði tæmt tök gagnvart hættubrotsákvæðinu.
Ákæruvaldið vildi að Landsréttur myndi endurskoða þessa niðurstöðu.Var niðurstaða réttarins að um manndráp af gáleysi væri að ræða og að ekki væri gálausu viðbrögðin hefðu helgast af nauðvörn líkt og Calin hélt fram. Landsréttur taldi hins vegar að sekt undir þessum lið leysti Calin ekki undan refsiábyrgð um hættubrotið og var hann jafnframt sakfelldur fyrir það.
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu Landsréttar taldi rétturinn rétt að milda dóm Calins úr þriggja og hálfs árs fangelsi í tvö ár og til að greiða málskostnað og miskabætur sem höfðu verið ákveðnar í héraði.
Fyrir héraðsdómi sagði Calin að hann þeir Daníel hefðu mælt sér mót til þess að eiga í fíkniefnaviðskiptum. Calin vissi ekki að Daníel væri maðurinn sem hann myndi hitta og öfugt. Að sögn Calins höfðu þeir áður átt í hörðum deilum og því hafi hann orðið hræddur þegar hann hitti Daníel. Sá hafi haft í hótunum við Calin og reynt að komast inn í bíl hans. Í kjölfarið flúði Calin af vettvangi með Daníel haldandi í opna rúðu við bílstjórasætið. Calin keyrði á um 15 til 20 kílómetra hraða út af bílaplaninu og Daníel dróst þannig eða hljóp með bílnum að minnsta kosti 13,9 metra, að því er fram kemur í dómnum. Í kjölfarið ók Calin af vettvangi án þess að athuga með ástand Daníels sem hafði fallið í jörðina. Hann lést á sjúkrahúsi daginn eftir vegna höfuðáverka.
Héraðsdómur dró ekki í efa að Calin hefði orðið hræddur við Daníel en að Calin hefði mátt vera ljóst að hann stofnaði Daníel í stórhættu með athæfinu. Þá var sömuleiðis bent á að ekkert hafi komið fram um að Daníel hefði borið á sér hættulega hluti, að atvikið hafi orðið að morgni fyrir utan fjölbýlishús og Calin hefði því getað kallað á hjálp ef Daníel hefði veist að honum. Í dómnum segir að viðbrögð Calins hafi verið töluvert harkalegri en efni voru til.
Ásamt fangelsisvistinni var Calin gert að greiða foreldrum Daníels þrjár milljónir króna í miskabætur, rúma milljón króna í útfararkostnað og 700 þúsund krónur í málskostnað. Calin var einnig dæmdur fyrir nokkur fleiri brot, m.a. fjársvik og akstur undir áhrifum fíkniefna.