Framkvæmdanefnd um nýja þjóðarhöll í innanhússíþróttum hefur ákveðið að hin nýja höll verði reist sunnan við núverandi höll í Laugardal. Ríkisútvarpið greinir frá.
Eins og áður hefur verið greint frá er stefnt að því að framkvæmdum ljúki árið 2025.
Í umfjöllun Ríkisútvarpsins segir að framkvæmdanefndin muni skila skýrslu í desember þar sem gefin verða rök fyrir valinu á staðsetningunni. Þá sé nú einnig unnið að deiliskipulagi og má vænta að þeirri vinnu ljúki í mars eða apríl.