Rannsóknir á nýja lyfinu lecanemab sem sagt var frá fyrr í dag hafa vakið mikla spennu í fræðasamfélaginu, enda hafa fá tæk úrræði verið til staðar til að berjast við Alzheimer-sjúkdóminn.
„Maður er búinn að vera það lengi í þessum geira að maður hefur orðið vitni að mörgum vonbrigðum. En þetta lyf er mest lofandi lyf sem ég hef séð á öllum þeim tíma. Ef þetta gengur eftir og lyfið fer á markað þá er þetta gjörbylting varðandi þennan sjúkdóm,“ segir Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands.
Hún segir að virkni lyfsins í rannsóknum sé meiri en áður hafi sést og að það valdi ekki meiri aukaverkunum.
Í niðurstöðum kemur fram að 17,3 prósent þeirra sem fengu lyfið urðu fyrir blæðingu í heila, yfirleitt einkennalausum örblæðingum, samanborið við 9 prósent hjá þeim sem fengu lyfleysu.
„Slíkar örheilablæðingar koma fram á segulómun á höfði en fólk finnur yfirleitt ekki fyrir þeim,“ segir Steinunn.
Sama má segja um að 12,6 prósent þeirra sem tóku lyfið fengu bjúg í heila, samanborið við 1,7 prósent þeirra sem fengu lyfleysu, en Steinunn segir að slíkur bjúgur sé yfirleitt einkennalaus og gangi yfir.
„Þetta tengist því að þegar próteinið sem talið er orsaka Alzheimer-sjúkdóminn er að hreinsast út, þá getur það valdið þessum örblæðingum eða heilabjúg hjá hluta notanda lyfsins. Þessar aukaverkanir krefjast þó þétts eftirlits með myndrannsóknum af heila, sem er ein af þeim áskorunum sem þarf að leysa úr, fari lyfið á markað.“
Nánar verður fjallað um lyfið í Morgunblaðinu á morgun, fimmtudag.