María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, hefur sagt upp starfi sínu vegna vanfjármögnunar stofnunarinnar, að því er fram kemur í bréfi sem hún sendi starfsfólki í morgun. Stundin greindi fyrst frá.
Morgunblaðið hafði fengið veður af fyrirhugaðri uppsögn og hefur síðustu tvær vikur sent ítrekaðar beiðnir um staðfestingu á uppsögninni til Maríu en hún hefur ekki brugðist við því.
María var á meðal þeirra sem sóttu um stöðu Framkvæmdastjóra þróunar hjá Landspítalanum í síðasta mánuði.
Í bréfi Maríu til starfsfólksins, sem Stundin vísar í, segist hún ekki geta borið ábyrgð á rekstri Sjúkratrygginga við þessar aðstæður. Fjárveitingar stofnunarinnar hafi lækkað síðan 2018 ef reiknað væri á föstu verðlagi.
Ekki hefði tekist að styrkja rekstrargrundvöll til að ná ásættanlegum árangri svo hægt væri að uppfylla lögboðnar skyldur og bjóða samkeppnishæf laun.
Uppsögnin mun hafa verið rædd á stjórnarfundi Sjúkratrygginga á fimmtudag en þar upplýsti María að hún hefði sent heilbrigðisráðherra uppsagnarbréf.