Alls leituðu 248 manns á Landspítala vegna flugeldaslysa frá desember árið 2010 og fram í janúar á þessu ári. Þar af voru 114 börn og voru 12 þeirra á leikskólaaldri en það yngsta var níu mánaða. Mikill meirihluti slasaðra var karlkyns, eða 181, sem gera 73%.
Meðalfjöldi slysa á ári er 21 talsins en alls urðu 28% slysa, eða 70 tilfelli, utan leyfilegs skottíma flugelda. Slysin voru misalvarleg, allt frá því að vera lítils háttar bruni upp í aflimanir og blindu.
Þetta kemur fram í rannsókn á flugeldaslysum sem birtist í grein í Læknablaðinu í dag.
Leggja þurfti 22 sjúklinga á Landspítala vegna áverka sem þeir hlutu í flugeldaslysum og lágu þeir samtals í 91 dag. Enginn lést en að minnsta kosti 13 urðu fyrir varanlegu heilsutjóni.
Af þeim 248 sem leituðu á spítalann hlutu 157 einstaklingar brunaáverka, þar af 104 á höndum. Augnaáverkar fundust hjá 67 einstaklingum og 97 hlutu opin sár.
Rannsóknin, sem byggist á textaleit í sjúkraskrám Landspítala, leiddi í ljós að 39% slysa megi rekja til gallaðra flugelda. Af þeim tilfellum þar sem flugeldategund var skráð ollu rakettur flestum slysum, eða 56. Þar á eftir komu skottertur sem ollu 43 slysum. Blys ollu 32 slysum.
Þá fundust 54 hliðarslys vegna flugelda í rannsókninni. Voru það meðal annars einstaklingar sem leituðu lækninga sökum loftmengunar, hrösuðu þegar þeir forðuðust flugelda, hrösuðu um flugeldarusl eða hlutu skaða af þegar dýr fældist.
Í greininni kemur fram að efla þurfi forvarnir gegn flugeldaslysum og að íhuga þurfi strangari reglur um notkun þeirra. Sláandi hafi verið hversu mörg börn slösuðust hér á landi eða um helmingur þeirra sem leituðu á bráðamóttöku.
Af þeim 114 börnum sem komu á Landspítala voru 42 sögð undir eftirliti fullorðinna þegar slysið átti sér stað. Börn sem voru án eftirlits voru 28 en í 44 tilfellum lágu gögn um það ekki fyrir.
„Á tímabilinu slösuðust 12 börn á leikskólaaldri, eða að meðaltali eitt á ári. Sjö þeirra slösuðu sig á stjörnuljósum, ýmist sjálf við notkun þeirra eða þau komust í snertingu við notuð stjörnuljós. Einungis ung börn slösuðust vegna stjörnuljósa, börn á aldrinum 13 mánaða til 9 ára. Skyldueftirliti með börnum var ábótavant en einungis 37% slasaðra barna voru undir eftirliti. Stjörnuljós líta út fyrir að vera saklaus ljósadýrð en þau brenna skært og ná yfir 1000°C hita,“ segir í greininni.
Þá kemur fram að skráningu er varðar notkun áfengis og annarra fíkniefna hafi verið ábótavant en engar upplýsingar um það komu fram í 237 tilfellum.
Af þeim tilfellum sem voru skráð voru 10 sagðir hafa verið undir áhrifum áfengis og einn sagður allsgáður. Enginn var sagður undir áhrifum annarra efna.