Ólíklegt er að mál sem kom upp hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, þar sem starfsmaður varð uppvís að því að taka þátt í gerð klámmyndbands á vinnustaðnum, verði til þess að breytingar verði gerðar á öryggismálum eða aðgengi á vinnustaðnum. Þetta segir Birgir Finnsson, aðstoðarslökkviliðsstjóri hjá slökkviliðinu.
„Eins og staðan er núna þá tel ég það mjög ólíklegt af því við teljum þetta vera bara einstakt tilfelli sem hefur afleiðingar í för með sér fyrir starfsmanninn. Í grunninn þá treystum við okkar starfsfólki mjög vel,“ segir Birgir. „Við teljum að þetta sé algjör undantekning,“ bætir hann við.
Þá tekur hann fram að rýmið sem myndabandið var tekið upp í sé töluvert afsíðis þar sem yfirleitt er ekki umgangur á næturvöktum.
„Rýmið sem þetta er tekið upp í er þar sem standa varabílar á nóttunni og það eru ekki áhafnir að hlaupa þarna inn og út. Það er ekki eins og þetta gerist í aðalbílasalnum þar sem útköllin eru og að menn hafi liggur við gengið framhjá þessu,“ útskýrir Birgir.
Greint var frá því í fjölmiðlum fyrr í vikunni að klámmyndband væri í umferð sem tekið hefði verið upp í íslenskum sjúkrabíl. Við fyrstu skoðun hjá slökkviliðinu var ekki hægt að staðfesta að um væri að ræða bíl sem væri í notkun, en síðar kom í ljós að myndbandið var tekið upp innanhúss í húsnæði slökkviliðsins í Skógarhlíð.
Það reyndist svo vera starfsmaður sem bar ábyrgð á myndbandinu og var honum sagt upp störfum. Tveir einstaklingar sjást í myndbandinu, en hinn tengist slökkviliðinu ekki.
Málinu er formlega lokið af hálfu slökkviliðsins og hefur enga frekari eftirmála, að fram kom í tilkynningu frá slökkviliðinu í gær.
„Við erum algjörlega miður okkar að allt það frábæra starfsfólk sem starfar hjá SHS, vinnustaðurinn og okkar störf hafi verið dreginn inn í mál af þessu tagi,“ sagði jafnframt í tilkynningunni.