Héraðssaksóknari hefur ákveðið að gefa út ákæru á hendur tveimur mönnum sem eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka hér á landi.
„Ákæran er tilbúin,“ segir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara. Hann bætir við að hún verði væntanlega kynnt þegar farið verður fram á fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum í Héraðsdómi Reykjavíkur dag.
Spurður hvort mennirnir verði ákærðir fyrir 100. grein hegningarlaga þar sem fjallað er um hryðjuverk segir Karl Ingi að það ákvæði hafi aldrei verið til skoðunar. Hann vill annars ekkert tjá sig um innihald ákærunnar.
Mennirnir voru í síðasta mánuði úrskurðaðir í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald sem rennur út í dag. Þeir hafa setið í gæsluvarðhaldi í ellefu vikur, en að hámarki er hægt að fá gæsluvarðhaldsúrskurði í tólf vikur án þess að gefa út ákæru.