Banaslys við Höfðabakka í nótt

Maðurinn lést á Landspítala í nótt.
Maðurinn lést á Landspítala í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Karlmaður á fimmtugsaldri lést þegar hann varð fyrir bíl á Höfðabakka í Reykjavík um klukkan hálf eitt í nótt. Bifreið sem ekið var norður Höfðabakka, nálægt Árbæjarsafni, hafnaði á manninum.

Hann var fluttur á Landspítala í kjölfarið þar sem hann lést síðar um nóttina.

Lokað var fyrir umferð um Höfðabakka, á milli Bæjarháls og Stekkjarbakka í kjölfar slyssins. 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka nú tildrög slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert