Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp

Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. mbl.is/Unnur Karen

Hjúkr­un­ar­fræðing­ur hef­ur verið ákærður fyr­ir mann­dráp á geðdeild Land­spít­al­ans. Hún er sökuð um að hafa banað sjúk­lingi á spít­al­an­um með því að neyða ofan í hann mat með þeim af­leiðing­um að hann kafnaði.

Á vef Rík­is­út­varps­ins kem­ur fram að héraðssak­sókn­ari hafi fyr­ir tveim­ur vik­um gefið út ákæru á hend­ur hjúkr­un­ar­fræðingn­um sem áður starfaði á geðdeild 33C á Land­spít­al­an­um, fyr­ir mann­dráp og brot í op­in­beru starfi.

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu til­kynnti í ág­úst í fyrra að hún hefði til rann­sókn­ar and­lát konu á sex­tugs­aldri sem hefði lát­ist á Land­spít­al­an­um fyrr í mánuðinum.

Síðar hef­ur komið fram að hjúkr­un­ar­fræðing­ur á Land­spít­al­an­um hafi verið grunaður um mann­dráp.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert
Loka