Spáð er austan og norðaustan 3-10 metrum á sekúndu í dag. Él verða norðaustanlands og einnig syðst og vestast á landinu, en víða bjartviðri annars staðar. Frost verður á billinu 3 til 13 stig.
Norðlæg átt og 5-13 m/s verða á morgun og dálítil él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað verður að mestu sunnan heiða. Áfram verður kalt í veðri.