María Björk Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri N4, er mágkona Stefáns Vagns Stefánssonar, nefndarmanns í fjárlaganefnd sem samþykkti 100 milljón króna styrk til fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða eigið efni. Stefán Vagn skrifaði undir álit nefndarinnar um að samþykkja ætti tillögu um styrkinn.
Vísir greindi fyrst frá.
Meirihluti fjárlaganefndar samþykkti að veita 100 milljón króna styrk úr ríkissjóði til fjölmiðla á landsbyggðinni.
Vekur þetta upp spurningar um hagsmunatengsl en ekki hefur tekist að fá viðbrögð nefndarmanna við þessum tengslum Stefáns.
N4 sendi beiðni til fjárlaganefndar 1. desember en Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segist hafa spurt meirihlutann í dag hvort styrkurinn væri einungis ætlaður N4.
„Þau útskýrðu fyrir mér að það væru fleiri [miðlar] sem styrkurinn myndi dreifast til,“ segir Björn og á þá við miðla á landsbyggðinni sem framleiða eigið efni fyrir sjónvarpsstöð.
Auk N4 framleiðir meðal annars Víkurfréttir á Suðurnesjum eigið efni. Fjárlaganefnd barst þó ekki beiðni frá neinum öðrum miðli en N4.