15 vilja verða forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar

Staða forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands var auglýst í nóvember, í frysta …
Staða forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands var auglýst í nóvember, í frysta sinn í 20 ár. mbl.is/Hari

Alls bárust 15 umsóknir um embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, að því er kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Staða forstöðumanns var auglýst í lok nóvember og rann umsóknarfrestur út þann 12. desember. 

Meðal umsækjenda er þungavigtarfólk í menningargeiranum, til að mynda Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíó Paradísar, Börkur Gunnarsson nýráðinn rektor Kvikmyndaskóla Íslands og Pálmi Guðmundsson, fyrrum dagskrárstjóri hjá Símanum og Stöð 2. Þá er innanbúðarfólk hjá Kvikmyndamiðstöð meðal umsækjenda; Sigurrós Hilmarsdóttir framleiðslustjóri, Christof Wehmeier kynningarstjóri og Jón Óskar Hallgrímsson fjármála- og rekstrarstjóri. Þá vekur athygli að Ólöf Rún Skúladóttir, fréttamaður á Ríkissjónvarpinu sækir einnig um stöðuna.

Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af menningar- og viðskiptaráðherra mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra.

Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára frá og með 18. febrúar á næsta ári.

Umsækjendur um embætti forstöðumanns Kvikmyndamiðstöðvar Íslands eru: 

  1. Börkur Gunnarsson, rektor
  2. Christof Wehmeier, kynningarstjóri
  3. Gísli Snær Erlingsson, kvikmyndaleikstjóri
  4. Guðmundur Breiðfjörð, markaðs-, sölu- og viðburðasérfræðingur
  5. Henný Adólfsdóttir, sölustjóri
  6. Hólmgeir Baldursson, umboðsmaður
  7. Hrönn Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri
  8. Jón Óskar Hallgrímsson, fjármála- og rekstrarstjóri
  9. Karólína Stefánsdóttir, verkefnastjóri
  10. Kristín Amalía Atladóttir, framkvæmdastjóri
  11. Marteinn Ibsen Ibsensson, kvikmyndagerðamaður
  12. Michael Lane, verkefnastjóri
  13. Ólöf Rún Skúladóttir, fréttamaður
  14. Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri
  15. Sigurrós Hilmarsdóttir, framleiðslustjóri
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert