Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, segir ákvörðun um að setja meiri pening í einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni vera birtingarmynd skoðana og áherslna meirihluta fjárlaganefndar.
„Nefndarmenn, hvort sem þú sért í fjárlaganefnd eða efnahags- og viðskiptanefnd, hafa ákveðnar skoðanir og ákveðnar áherslur. Þarna birtist áhersla meirihluta fjárlaganefndar í því að hún telur að einkareknir fjölmiðlar úti á landi þurfi að fá meira vægi og þeir hafa núna látið mig fá það verkefni að gera úttekt á stöðu fjölmiðla á landsbyggðinni og rekstrarstöðu þeirra,“ segir Lilja í samtali við mbl.is.
Sjónvarpsstöðin N4 sendi beiðni til fjárlaganefndar 1. desember um 100 milljóna króna styrk úr ríkissjóði.
Gerð var breytingartillaga að fjárlögum í kjölfarið sem fól í sér aukinn stuðning við einkarekna fjölmiðla um 100 m.kr. „Framlagið er vegna reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða eigið efni fyrir sjónvarpsstöð,“ sagði í breytingartillögunni.
Ekki barst beiðni fyrir auknum styrkjum frá neinum öðrum landsbyggðarfjölmiðli en N4 og óvíst er hvert annað þetta fé ætti að fara.
Í nefndaráliti meirihluta fjárlaganefndar í gærkvöldi var Lilju falið að endurskoða reglur um fjölmiðla á landsbyggðinni „í ljósi umræðu í fjölmiðlum“ um málið, en meðal þess sem kom fram í gærkvöldi var að María Björk Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri N4, væri mágkona Stefáns Vagns Stefánssonar, nefndarmanns í fjárlaganefnd.
„Formaður fjárlaganefndar greindi frá því að hann [Stefán] hafi ekki setið á þeim fundi þegar þetta var afgreitt, þannig að samkvæmt því tók hann ekki þátt í þessari ákvörðun. Það er jákvætt að aukið fé sé komið inn í þetta almenna fjölmiðlastyrkjakerfi,“ segir Lilja um tengsl Stefáns Vagns við N4.
Finnst þér að nefndin hafi farið á bak við þig í þessu máli?
„Nei fjárlaganefnd og nefndir eru bara í sinni vinnu og koma með tillögur og annað slíkt. Þessu var svo komið í góðan farveg eins og við erum búin að gera,“ segir Lilja.
„Þessar 100 milljónir fara inn í almenna fjölmiðlastyrkjakerfið fyrir árið 2023. Meirihluti fjárlaganefndar hefur falið ráðherra að endurskoða þær reglur sem eru í gildi um rekstrarstuðning við einkarekna fjölmiðla á landsbyggðinni þar sem það er aukið tillit tekið til þeirra sem framleiða efni fyrir sjónvarp. Gerð verður úttekt á rekstrarstöðu fjölmiðla á landsbyggðinni.“