Tólf tíma tístvakt lögreglunnar

Líflegt gæti orðið í miðbænum í kvöld en væntanlega fagna …
Líflegt gæti orðið í miðbænum í kvöld en væntanlega fagna margir námsmenn próflokum þessa helgina. mbl.is/Arnþór

Lög­regl­an mun í kvöld og nótt  halda úti löggu­tístinu (#löggu­tíst), en þar gefst al­menn­ingi færi á að fylgj­ast með hinum ýmsu viðfangsefnum lögreglunnar í tólf tíma.

Hægt verður að fylgj­ast með löggu­tíst­inu hér á mbl.is og mun löggu­tístið standa yfir frá klukk­an 16:00 í dag til 04:00 í nótt eða í tólf tíma.

Lögreglan hefur nokkrum sinnum á umliðnum árum verið með tístvakt sem þessa og gefst þá almenningi tækifæri til að fá meiri innsýn í störf lögreglunnar og þeim verkefnum sem hún sinnir. 

Fyrir áhugasama má benda á að lögreglan notar myllumerkið #löggutíst í tengslum við tístvaktina.




 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert