Óvissustig almannavarna vegna veðurs á Suðausturlandi

Víða er spáð vondu veðri á morgun.
Víða er spáð vondu veðri á morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna veðurs, á morgun mánudaginn 19. desember.

Þetta kemur fram í tilkynningu almannavarna.

Von á norðaustanofsaveðri

Í tilkynningunni segir að appelsínugul viðvörun tekur gildi í fyrramálið klukkan 7 á Suðurausturlandi og á óvissustigið við um það svæði sem appelsínugula viðvörunin nær yfir.

Þar er von á norðaustanofsaveðri og verður hvassast næst sjávarsíðunni. Líkur eru á vindhviðum að 45-50 metrum á sekúndu.

Foktjón er líklegt og því ekkert ferðaveður.

Appelsínugul viðvörun tekur gildi í fyrramálið kl. 7 á Suðurausturlandi …
Appelsínugul viðvörun tekur gildi í fyrramálið kl. 7 á Suðurausturlandi og á óvissustigið við um það svæði sem appelsínugula viðvörunin nær yfir. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert