Fylgdarakstur er að hefjast frá Hafnarfirði til Keflavíkur og eins frá Keflavík til Hafnarfjarðar. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar en Reykjanesbraut er lokuð vegna veðurs.
Löng bílaröð hefur myndast við álverið í Straumsvík.
Flugfarþegar eru á meðal þeirra sem hafa ekki komist leiðar sinnar í morgun.
Reykjanesbraut: Reykjanesbrautin er lokuð vegna veðurs. Erum að fara í gang með fylgdar akstur frá Hafnarfirði og til Keflavíkur, eins frá Keflavík til Hafnarfirði.
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 19, 2022
#færðin