Búið er að loka Reykjanesbrautinni og Grindavíkurvegi vegna veðurs. Flugfarþegar, sem og aðrir, hafa því ekki komist til og frá höfuðborgarsvæðinu.
Á vef Isavia kemur fram að sjö komum frá Bandaríkjunum til Keflavíkur núna í morgun hafi verið aflýst, ásamt einni frá Ósló. Brottför Icelandair til London Gatwick klukkan 7.45 hafi jafnframt verið aflýst.
Á vefnum í gær kom fram að vegna veðurs gæti orðið röskun á flugi til og frá Keflavíkurflugvelli og um innanlandsflugvelli frá því í morgun og fram á þriðjudag.
Vegurinn um Hellisheiði er einnig lokaður, að sögn Vegagerðarinnar.
Athygli er vakin á því að margir vegir gætu lokað með stuttum fyrirvara í dag vegna veðurs.
Athugið: Margir vegir geta lokað með stuttum fyrirvara í dag 19. desember á suður- og vesturlandi. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 19, 2022