Verið er að opna Reykjanesbrautina frá Reykjavík til Keflavíkur.
Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.
Þá segir að búist sé við að hægt verði að opna í báðar áttir um klukkan 14.
Reykjanesbrautin hefur verið meira eða minna lokuð í rúman sólarhring.
Uppfært 13:08
Búið er að opna Reykjanesbrautina í báðar áttir.
Reykjanesbraut: Verið er að opna veginn frá Reykjavik og til Keflavíkur og búist er við að hægt verð að opna í báðar áttir í kringum kl. 14.00. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 20, 2022