Búið er að opna veginn á milli Víkur og Markarfljóts, en taka mun lengri tíma að opna austur frá Vík.
Þetta kemur fram í upplýsingum frá Vegagerðinni en stefnt er að opnun til austurs fyrir klukkan 17, gangi mokstur áfram að óskum.
Kirkjubæjarklaustur: Það er opið milli Víkur og Markarfljóts en taka mun lengri tíma að opna austur frá Vík. Stefnt er að opnun til austurs milli kl. 16:00 og 17:00, gangi mokstur áfram að óskum. Upplýsingar koma hér inn ef þessi áætlun breytist. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 26, 2022