Veginum milli Hvolsvallar og Kirkjubæjarklausturs verður lokað klukkan 10 í kvöld.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni en þangað til verður fylgdarakstur í gangi.
Nýjar upplýsingar um opnun milli Hvolsvallar og Víkur verða gefnar klukkan 9 í fyrramálið og á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs klukkan 11 í fyrramálið.
Athugið: Lokað verður kl 22:00 milli Hvolsvallar og Kirkjubæjarklausturs. Nýjar upplýsingar um opnun milli Hvolsvallar og Víkur verða gefnar kl. 09:00 í fyrramálið og milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs verða nýjar upplýsingar gefnar kl. 11:00 í fyrramálið. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) December 26, 2022