„Það þurfti ekki lengur að aðstoða neinn, heldur snerist þetta um að koma fólki í húsnæði,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við mbl.is.
Í gærkvöldi var unnið að því að koma í skjól um 50 strandaglópum við Gatnabrún, þ.e. við afleggjarann að Reynisfjöru, og 10 við Pétursey.
Aðgerðum björgunarsveita lauk fyrir miðnætti í gær og spurður hvort það hafi komið upp fleiri verkefni um nóttina svarar hann því neitandi.
„Það hefur verið tiltölulega rólegt í nótt.“