Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Höfðabakka í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 10. desember, en þar var ekið á gangandi vegfaranda sem lést. Sá sem lést var karlmaður á fimmtugsaldri.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í henni segir:
„Tilkynning um slysið barst kl. 0.33, en það varð á Höfðabakka, nálægt Árbæjarsafni. Þau sem urðu vitni að slysinu eru vinsamlegast beðin um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið 1710@lrh.is.“