Metár í magni fíkniefna

Kókaín sem hollenska lögreglan gerði upptæk í timbursendingu sem átti …
Kókaín sem hollenska lögreglan gerði upptæk í timbursendingu sem átti að berast til landsins. Ljósmynd/Hollenska lögreglan

Óvenju mikið magn fíkniefna var haldlagt af lögreglu og tollgæslu á árinu, og ljóst er að um er að ræða metár. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum lögreglu fyrir árið. 

Þar segir að lögregla og tollgæsla hafi aldrei lagt hald á meira marijúna, eða yfir 160 kíló, það átti einnig við um amfetamín basa, en lagt var hald á 47 lítra.

Þá lagði lögregla hald á yfir 140 kíló af kókaíni, en um 100 kíló voru haldlögð fyrst í Hollandi.

Lagt var hald á tæplega 21 lítra af MDMA basa og rúm 2 kíló af metamfetamín kristöllum, sem er einnig meira en áður.

Nefnt er að enn sé ekki búið að klára vigtun efna nema fyrir fyrstu tíu mánuði ársins. 

40% fleiri útköll sérsveitarinnar

Alls voru 388 vopnaútköll voru skráð hjá sérsveit ríkislögreglustjóra árið 2022. Það eru 40% fleiri útköll en að meðaltali síðastliðin þrjú ár á undan. 

Í 62% þessara mála, þar sem einhver ber vopn og sérsveit er kölluð til, er um að ræða egg- eða stunguvopn og í 23% málanna var um að ræða skotvopn.

Hegningarlagabrotum, sérrefsilagabrotum og umferðalagabrotum fækkaði hins vegar.

Tæplega helmingur hegningarlagabrota á höfuðborgarsvæðinu voru með skráðan vettvang á svæði lögreglustöðvar 1, sem nær yfir Háaleiti, Hlíðar, Laugardal, Miðborg, Seltjarnarnes og Vesturbæ. Þar af voru um 16% hegningarlagabrota með skráðan vettvang í miðborginni. 

Þegar litið er til grunaðra í hegningarlagabrotum má sjá að 78% grunaðra voru karlar og 22% konur. Þá voru nokkrir kynsegin einstaklingar uppvís að brotum.

4.300 einstaklingar handteknir

Í bráðabirgðatölunum segir að á árinu voru að jafnaði skráð 396 mál á sólarhring hjá lögreglu og þar af fólu að jafnaði 112 tilvik á sólarhring í sér útkall af einhverju tagi. Er það svipaður fjöldi og í fyrra. 

Alls voru rétt yfir 4.300 einstaklingar handteknir þetta árið og þar af um 66% á höfuðborgarsvæðinu. Þá voru um 2.200 einstaklingar vistaðir í fangageymslu, þar af um 63% á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert