Tveggja bíla árekstur í Öræfum

Ljósmynd/Lögreglan

Vegurinn við Kvíármýri í Öræfum er lokaður eftir árekstur tveggja bíla upp úr klukkan tvö í dag.

Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni á Höfn í Hornafirði eru viðbragðsaðilar nýkomnir á vettvang. Slys eru talin hafa orðið á fólki en ekki alvarleg, að því er talið er.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert