Töluvert af ólöglegum lyfjum virðist vera í umferð á svörtum markaði hérlendis, til dæmis steratengd efni.
Nýlega tóku Tollgæslan og Lyfjastofnun þátt í alþjóðlegri aðgerð Europol sem beindist að ólöglegum lyfjum og steratengdum efnum og afraksturinn gefur vísbendingar um að nokkur sé eftir ólöglegum lyfjum hérlendis.
„Á meðan á aðgerðinni stóð nutu embættin aðstoðar tengslafulltrúa Íslands hjá Europol. Töluverður fjöldi smærri mála kom upp hér á landi í tengslum við aðgerðina. Á meðal þess sem lagt var hald á hér á landi voru steratengd efni, rislyf og svokölluð „smart-drugs“,“ segir í fréttatilkynningu vegna málsins.
Tuttugu og átta ríki tóku þátt í aðgerðinni sem fram fór á síðasta ári en aðgerðirnar stóðu yfir yfir í átta mánuði. Samanlagt var lagt hald á lyf að andvirði rúmlega 40 milljón evra í löndunum tuttugu og átta. Voru 349 einstaklingar handteknir eða tilkynntir til yfirvalda í tengslum við aðgerðirnar.