70 bifreiðar lentu í vandræðum á Mosfellsheiði

Frá aðgerðum á Mosfellsheiði en eins og sjá má var …
Frá aðgerðum á Mosfellsheiði en eins og sjá má var skyggnið afleitt. Ljósmynd/Landsbjörg

Yfir sjötíu bifreiðum var fylgt yfir Mosfellsheiði til Þingvalla í kvöld og margar þeirra voru losaðar úr snjó. 

Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að aðgerðum sé lokið og fólk hafi safnast saman við þjónustumiðstöðina á Þingvöllum. Fyrr í kvöld var veginum lokað þar sem fjölmargir bílar sátu þar fastir í slæmu skyggni. 

Björgunarsveitir fylgdu svo bílalest þaðan niður á Suðurlandsveg við Selfoss, en margir hugðust fara Hellisheiði til Reykjavíkur,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert