Almanak HÍ er alltaf mest selda bók ársins hjá Bókakaffinu á Selfossi og ekki varð breyting á því árið 2022.
Sunnlenska.is hefur þetta eftir Elínu Gunnlaugsdóttur bóksala í Bókakaffinu en hún segir einnig að bókin Keltar eftir Þorvald Friðriksson hafi verið afar vinsæl.
Þótt ekki takist að ryðja Almanakinu úr vegi á toppnum þá seldust skáldsögur Kyrrþey eftir Arnald Indriðason og Játning eftir Ólaf Jóhann Ólafsson mjög vel.
Hjá bókaútgáfunni Sæmundi á Selfossi voru bækurnar Álfadalur eftir Guðrúnu J. Magnúsdóttur, Örlagaskipið Arctic eftir G. Jökul Gíslason og Rauði þráðurinn ævisaga Ögmundar Jónassonar vinsælastar.