Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lokað veginum um Mosfellsheiði vegna fastra bíla. Vegna þessa hefur einnig verið lokað fyrir umferð austur Þingvallaveg, frá Gljúfrasteini í Mosfellsdal.
Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þá kemur fram að lögreglan muni jafnframt loka fyrir umferð inn á Þingvallaveg frá Vesturlandsvegi, nema fyrir íbúa. Öðrum vegfarendum verður snúið frá á meðan þetta ástand varir.
Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að björgunarsveitir hafi verið kallaðar út um kvöldmatarleytið vegna þeirra sem voru í vandræðum á Mosfellsheiði. Nokkrir bílar reyndust einnig vera fastir á Kjósarskarðsvegi þegar björgunarsveitir komu á staðinn.
Ófært um Mosfellsheiði - bílar fastir. Vegurinn um Mosfellsheiði er lokaður vegna fastra bíla. Vegna þessa hefur verið...
Posted by Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu on Sunnudagur, 8. janúar 2023