Andlát: Haraldur J. Hamar

Haraldur J. Hamar.
Haraldur J. Hamar.

Haraldur J. Hamar, fv. ritstjóri, útgefandi og blaðamaður, lést fimmtudaginn 5. janúar síðastliðinn, 87 ára að aldri.

Haraldur fæddist á Ísafirði 25. ágúst 1935. Móðir hans var Guðrún Örnólfsdóttir. Uppeldisforeldrar voru Jón Halldórsson og Ingibjörg Elíasdóttir. Haraldur ólst upp á Ísafirði og gekk þar í barna- og gagnfræðaskóla.

Hann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1955 og ætlaði þá um haustið í guðfræði við Háskóla Íslands. Að loknu stúdentsprófi fór Haraldur í sína fyrstu utanlandsferð og skrifaði um hana þrjár greinar í Morgunblaðið. Í kjölfar þeirra bauð Valtýr Stefánsson ritstjóri honum starf sem blaðamaður á Morgunblaðinu. Hann starfaði á blaðinu frá nóvember 1955 til 1967 og sá m.a. um Lesbókina ásamt Sigurði A. Magnússyni rithöfundi.

Haraldur hafði stofnað tímaritið Iceland Review haustið 1963, ásamt Heimi Hannessyni, en tók síðar alfarið við útgáfunni. Sem kunnugt er hefur tímaritið lagt áherslu á fréttir og umfjöllun á ensku um Ísland. Tímaritið Atlantica varð síðan hluti útgáfustarfsins ásamt fjölbreyttri bókaútgáfu á ýmsum tungumálum og útgáfu blaða íslenskra flugfélaga. Árið 1975 hóf Haraldur svo mánaðarlega útgáfu á News From Iceland með dreifingu víða um lönd, en það telst fyrsta reglubundna fréttaþjónustan á ensku frá Íslandi. Fékk Haraldur fálkaorðuna árið 1994 fyrir landkynningarstörf.

Haraldur hætti sem útgefandi árið 1999, en þá sameinaðist útgáfufyrirtæki hans Vöku-Helgafelli. Ári síðar sameinuðust Vaka og Mál og menning í Eddu og 2002 keypti útgáfufyrirtækið Heimur þessa útgáfu sem Haraldur hafði hafið og hann hætti endanlega afskiptum af henni.

Eiginkona Haraldar var Sigríður Guðjónsdóttir, fædd 30. júní 1935, dáin 1. nóvember 2022. Dætur þeirra eru Inga Hildur Hamar, Anna Þuríður Haraldsdóttir Hamar, Halla Haraldsdóttir Hamar og Guðrún Helga Hamar. Barnabörnin eru 14 talsins og langafabörnin fjögur.

Útför Haraldar fer fram frá Garðakirkju 18. janúar kl. 13.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert