Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út fyrr í dag til að aðstoða við leit lögreglunnar á Vesturlandi að Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni, sem saknað er. Mun þyrlan leita ströndina frá Vestur-Mýrum, um Borgarvog og sunnan Borgarfjarðarbrúar.
Ásmundur Kr. Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að svæðisstjórn björgunarsveita hafi einnig verið ræst og mun líklegast kalla út sveitir til leitar.
Segir hann að talið sé að Modestas, sem sást síðast á laugardaginn, hafi verið á fæti og er leitarsvæði bæði innandyra og utandyra í nágrenni Borgarness.
Ásmundur segir að þyrla Landhelgisgæslunnar sé fljót að fara yfir og sé með hitamyndavél sem geti aðstoðað mikið, sérstaklega ef í ljós komi að hann hafi verið á ís eða við sjó.
Síðast er vitað af ferðum hans í Borgarnesi laugardaginn 7. janúar, en þeir sem hafa séð til hans eða vita hvar hann kann að vera niðurkominn eru beðnir að láta lögregluna á Vesturlandi vita í síma 4440300 eða setja sig í samband við Neyðarlínuna í síma 112.