Nýr sameinaður fjölmiðill Stundarinnar og Kjarnans sem fór í loftið í morgun nefnist Heimildin.
Ritstjórar eru þau Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir og Þórður Snær Júlíusson.
„Um er að ræða tvö fjölmiðlafyrirtæki sem voru stofnuð út frá svipuðum forsendum og hugmyndafræði, um að sækja vald sitt og rekstrargrundvöll fyrst og fremst til lesenda. Með því er boðið upp á mótvægi við þá skekkju sem myndast hefur á íslenskum fjölmiðlamarkaði,“ segir í leiðara fjölmiðilsins.
12 blaðamenn starfa á ritstjórninni og mun þeim fjölga á næstunni.