Spáð er norðaustan 5-13 metrum á sekúndu í dag. Léttskýjað verður sunnan- og vestanlands, en dálítil él verða á Norðaustur- og Austurlandi.
Norðlæg átt og 13-18 m/s verða við austurströndina á morgun, en annars mun hægari. Spáð er þurru og björtu veðri, en skýjað verður og stöku él austanlands.
Frost verður á bilinu 5 til 20 stig.